Meðferð persónuupplýsinga

Hér að neðan er samantekt á því hvernig Origo safnar og vinnur með öðrum hætti persónuupplýsingar þeirra einstaklinga sem skoða eða versla í netverslun Origo. Þessi samantekt er hluti af þessari samantekt þar sem er að finna nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga.

Origo er ábyrgðaraðili

Origo er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga viðskiptavina netverslunar. Í því felst að Origo ber ábyrgð á meðferð og öryggi upplýsinganna.

Frekari upplýsingar um ábyrgðaraðila:

Origo hf., kt. 530292-2079

Borgartún 37, 105 Reykjavík

s. 516-1000

Origo hefur skipað persónuverndarfulltrúa sem tekur við fyrirspurnum á netfangið personuvernd@origo.is

Söfnun persónuupplýsinga

Origo kann að safna, nota, geyma eða flytja mismunandi flokka persónuupplýsinga. Dæmi um þá flokka eru:

  • Auðkennisupplýsingar
  • Samskiptaupplýsingar
  • Fjármálaupplýsingar
  • Upplýsingar um viðskiptasögu
  • Tæknilegar upplýsingar
  • Upplýsingar um notendahegðun
  • Upplýsingar um markaðssetningu

 

Nánari skilgreiningu á flokkum persónuupplýsinga má finna hér.

Við söfnun upplýsinga notast Origo við mismunandi aðferðir sem gert er grein fyrir hér.

Notkun persónuupplýsinga

Origo mun aðeins nota persónuupplýsingar viðskiptavina netverslunar í tilgangi sem samrýmist þeim sem var upphaflega fyrir söfnun þeirra. Dæmi um slíkan tilgang er:

  • Til að hægt sé að skrá nýjan viðskiptavin
  • Til að afgreiða og senda pantanir til viðskiptavina
  • Vegna framkvæmdar á viðskiptasambandi við viðskiptavini
  • Til að bæta netverslun, vöru/þjónustu, markaðssetningu og viðskiptasamband
  • Til að bjóða viðskiptavinum vöru eða þjónustu sem gæti höfðað til þeirra

Nánari upplýsingar má finna hér.

 

Miðlun persónuupplýsinga

Origo miðlar persónuupplýsingum til þriðju aðila sem veita fyrirtækinu upplýsingatækni- og fjarskiptaþjónustu. Nánari upplýsinga má finna hér.

Flutningur persónuupplýsinga utan EES

Origo kaupir þjónustu af þjónustuveitendum sem eru utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Í því felst að persónuupplýsingar eru fluttar utan EES. Origo mun ekki flytja persónuupplýsingar utan EES nema það sé heimilt samkvæmt lögum. Sjá nánar hér.

Réttindi viðskiptavina

Einstaklingar hafa í vissum tilvikum réttindi samkvæmt persónuverndarlögum.

Nánari upplýsingar um þau réttindi sem einstaklingar kunna að hafa og hvernig þeir geta sent beiðni til Origo má finna hér.

Frekari upplýsingar

Frekari upplýsingar varðandi vinnslu persónuupplýsinga, öryggi þeirra, varðveislutíma og lagaheimild fyrir vinnslu má finna á hér