26/07/2024

Origo opnar verslun og skrifstofu á Skipagötu 16 á Akureyri.

Á sama tíma flytur verslun Eldhaf frá Glerártorgi og verður starfrækt undir merkjum Origo á Skipagötu.

Origo opnaði í dag nýja verslun og skrifstofu við Skipagötu 16 og eykur þannig verulega við þjónustustig á Akureyri. Að sögn Baldurs Arnar Jóhannessonar verslunarstjóra er markmiðið er að stórauka þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga á svæðinu:

Verslunin hefur mikla þýðingu fyrir einstaklinga og fyrirtæki á Norðurlandi, jafnvel Austurlandi líka, þar sem í henni gefst fyrirtækjum og einstaklingum kostur á að nálgast allt það nýjasta sem er í boði frá nokkrum af fremstu vörumerkjum í heimi eins og Lenovo, Canon, Sony, Bose og Apple.

Baldur Örn Jóhannsson

Verslunarstjóri

Sérfræðingar Origo í búnaði og sérsniðnum lausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir flytjast frá Hvannavöllum og verða staðsett á Skipagötu að sögn Baldurs. Eins mun starfsfólks Eldhafs á Glerártorgi flytjast yfir í verslunina. 

Hvort sem markmiðið sé að einfalda afgreiðslu og fá betri yfirsýn, tryggja að starfsfólk geti unnið hvar og hvenær sem er eða bjóða upp á framúrskarandi hljóð- og myndgæði, þá erum við með lausnina.

Baldur Örn Jóhannsson

Verslunarstjóri

Mörg spennandi tækifæri á Norðurlandi

Okkur finnst mikilvægt að vera með verslun á Akureyri. Viðskiptavinir hafa lengi óskað eftir auknu vöruúrvali og getum við nú loks boðið upp á alvöru framboð af hágæða vörumerkjum sem og betri þjónustu. Skipagata er frábær staðsetning og við getum ekki beðið eftir því að taka á móti fyrstu viðskiptavinum okkar á nýjum stað.

Okkur finnst mikilvægt að vera með verslun á Akureyri. Viðskiptavinir hafa lengi óskað eftir auknu vöruúrvali og getum við nú loks boðið upp á alvöru framboð af hágæða vörumerkjum sem og betri og hraðari þjónustu. Skipagata er frábær staðsetning og við getum ekki beðið eftir því að taka á móti fyrstu viðskiptavinum okkar á nýjum stað.

Baldur Örn Jóhannsson

Verslunarstjóri

Verslun Origo á Skipagötu 16 er opin frá kl. 9-17 alla virka daga og á laugardögum kl. 11-15 í sumar.

Deila frétt