SKILAREGLUR
Skilareglur – 30 daga skilaréttur
Skilafrestur á búnaði er 30 dagar frá dagsetningu kvittunar fyrir kaupum. Sé vöru skilað innan 14 daga frá þeirri dagsetningu býðst viðskiptavini full endurgreiðsla sem jafngildir upphaflegu kaupverði. Sé vöru skilað seinna en innan 14 daga býðst viðskiptavini hins vegar inneignarnóta.
Skil á búnaði eru háð eftirfarandi skilyrðum:
- Að framvísað sé kvittun fyrir kaupum á viðkomandi búnaði eða búnaður sé merktur með skilamiða
- Að plastumbúðir (herptar, soðnar, límdar) og innsigli frá framleiðanda eða Origo séu ekki rofin
- Að búnaður teljist í söluhæfu ástandi
- Að allir aukahlutir sem fylgja eiga búnaðinum séu til staðar, þ.m.t. allar snúrur og leiðbeiningar
- Að ekki hafi verið settur upp hugbúnaður á búnaðinn
- Að búnaður sé ekki útsöluvara
- Að búnaður sé ekki sérpantaður eða sérsniðinn að þörfum viðskiptavinar
Origo áskilur sér rétt til að hafna skilum á búnaði eða neita viðskiptavini um fulla endurgreiðslu séu ofangreind skilyrði ekki uppfyllt. Starfsmenn Origo geta ákveðið að taka á móti búnaði þótt ofangreind skilyrði séu ekki uppfyllt og fær viðskiptavinur þá endurgreitt að hámarki 70% af kaupverði. Athuga skal að endurgreiðsla vegna skila á búnaði nær aðeins til kaupverðs hans en annar kostnaður sem fellur til m.a. vegna flutnings á búnaði er á ábyrgð viðskiptavinar.
Aðeins er tekið við eftirfarandi vörum í óopnuðum eða innsigluðum umbúðum:
- Farsímar
- Rekstrarvörur, blekhylki, rafhlöður, pappír, ljósaperur o.s.frv.
- Minniskort, USB lyklar
- Flakkarar
- Harðir diskar
- Vörur sem eru keyptar forsniðnar, t.d. ákveðin lengd af snúrum
- Hugbúnaður
- Aðrar vörur sem hægt er að afrita eða fullnýta á 30 dögum
Skilaferli
Forsenda vöruskila er reikningur/sölunóta eða í ákveðnum tilfellum skilanúmer útbúið af söluráðgjafa í söludeild. Fylla þarf út form hér á síðunni til að fá skilanúmer hjá söluráðgjafa.
Vöru skal skila í Þjónustumiðstöð Köllunarklettsvegi 8 nema þá gildir eftirfarandi:
- Aðeins tekið á móti skilavörum á einum fyrirfram ákveðnum stað hjá fyrirtæki
- Vara aðeins sótt af bílstjóra um leið og ný vara er afhent
- Bílstjóri tekur aðeins á móti skilavöru sem hefur kvittun eða skilanúmer
Nánari upplýsingar um skilareglur Origo má finna í Almennir skilmálar Origo á Origo.is.
Eyðublað vegna vöruskila
Nauðsynlegt er að viðskiptavinur fylli út neðangreindar upplýsingar svo hægt sé að afgreiða beiðni hans.
Þetta eyðublað er í samræmi við kröfur laga nr. 16/2016 um neytendasamninga.