Hvernig kaupi ég tækjatryggingu Origo?
Þegar þú setur vöru í körfu í netverslun Origo kemur sjálfkrafa upp valmöguleiki til að bæta við tryggingu. Jafnframt er hægt að kaupa tryggingu þegar vara er keypt í verslun okkar Borgartúni 37 og á þjónustusviði okkar, Köllunarklettsvegi 8.
Hvernig virkar Tækjatrygging Origo?
Tækjatrygging Origo er mun víðtækari en heimilistrygging en tryggingin bætir beint tjón af völdum skyndilegs og ófyrirsjáanlegs utanaðkomandi atviks s.s. bruna- eða vatnstjóns, innbrots og/eða óhapps. Sömuleiðis bætir tryggingin einnig beint tjón af völdum innri bilunar. Tryggingin er ekki með neina eigin áhættu og gildir hvar sem er í heiminum. Ef til tjóns kemur þá mun það ekki hafa áhrif á þau kjör sem þú ert með hjá þínu tryggingafélagi.