Snjallbox

Einföld leið til að sækja og skila vöru. Viðskiptavinir ganga frá kaupum í vefverslun og sækja vöruna í snjallboxið þegar þeim hentar. Engar raðir og opið allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Snjallboxin nýtast einnig fyrir eignaumsýslu til að geyma tæki og fá yfirsýn yfir hvaða tæki eru í notkun og hversu lengi, hvaða tæki eru biluð og hvaða tæki eru í hleðslu.

Myndskreyting

Aukin þjónusta og góð upplifun með Strongpoint snjallboxum

Sérfræðingar okkar í afgreiðslulausnum stóðu fyrir afar vel sóttum viðburði fyrir nokkrum mánuðum með yfirskriftinni: Stafrænar lausnir fyrir þinn rekstur. Við fengum Martinu Nilson hjá Strongpoint í stutt spjall um síðustu skrefin í ferlinu að uppfylla kröfur viðskiptavina með snjallboxum. 

0:00

0:00

Snjallbox fyrir afhendingu

Einföld og örugg lausn

Snjallbox fyrir eignaumsýslu

Skilvirkari utanumhald eigna

Skráð hver er með tæki

Þar sem starfsmenn auðkenna sig með starfsmannakorti (RFID) er einfalt að rekja hvaða starfsmaður er með hvaða tæki.

Skráð hvort tæki sé í skáp eða ekki

Hægt er að fá skýrslur um stöðu á skáp á hvaða tíma sem er, en sjálfkrafa er hægt að senda upplýsingar um stöðu skáps og tækja á hverjum degi. Þannig er t.d. hægt að sjá strax hvort starfsmaður hafi merkt tæki sem bilað.

Hægt að merkja tæki bilað þegar því er skilað

Starfsmenn eru því alltaf að nota tæki sem eru í lagi.

Hægt að hlaða tæki sem þurfa hleðslu

Skápa er hægt að útbúa með hleðslutækjum þannig að hægt sé að hlaða tæki sem þess þurfa án þess að fara með þau annað.

Hægt að stýra aðgangi að tækjum

Eingöngu þeir sem þurfa tæki, geta opnað skápinn.  Einnig er hægt að stýra aðgangi að tækjum, þannig að sami starfsmaður geti ekki haft mörg tæki í notkun í einu.

Auðkenning í gegnum starfsmannakort (RFID)

RFID skanni er á skáp þannig að auðvelt sé að tengja starfsmannakort við lausnina.

5 ástæður þess að vera með Snjallbox

Vertu skrefinu á undan.

Langar þig að bæta upplifun viðskiptavina, hafa meiri yfirsýn yfir afhendingar, nýta betur tíma starfsfólks og lækka rekstrarkostnað? Snjallbox gerir þínu fyrirtæki kleift að hafa opið allan sólarhringinn og taka næsta skref í sjálfvirknivæðingu ferla og skilvirkni í rekstrinum.

Kynningamyndbönd

Aukin ánægja viðskiptavina og lægri rekstrarkostnaður

Lyklabox

Örugg lyklaafhending allan sólarhringinn

Með lyklaboxi frá okkur er hægt að afhenda lykla til viðskiptavina, starfsfólks eða verktaka með öruggum hætti hvenær sem er sólarhringsins. Auðvelt er að tímastilla aðgang, tengja við bókunarkerfi eða smáforrit og fá heildaryfirsýn yfir það hvaða lyklar eru í notkun hverju sinni.

myndskreyting

Snjallboxið hefur reynst OR vel

Nýjustu fréttir og fróðleikur

Ráðgjöf

Fá ráðgjöf