Fjarvinnulausnir

Vinnuumhverfi dagsins í dag er gjörbreytt frá því sem áður var og ekki lengur bundið við eina vinnustöð en nauðsynlegt er að tryggja að teymisvinna og framleiðni sé í lagi. 

Myndskreyting

„Við eigum okkur uppáhaldsstarfsmann, sem hefur aðstoðað okkur mikið í öllu ferlinu“

Akademias valdi þjónustuna okkar

Dæmi um spennandi lausnir fyrir allar gerðir fundarherbergja og fjarfunda

Lítil og meðalstór herbergi og skjástandar

Poly Studio X er ný kynslóð fjarfundatækja frá Poly sem byggir á Android stýrikerfi og nýjustu tækni í mynd- og hljóðgæðum, Group Framing og Speaker Tracking ásamt NoiseBlock og Acoustic Fence.

Poly Studio X kemur í tveimur útfærslum, X30 fyrir minni fundarherbergi og X50 fyrir meðalstór fundarherbergi. 

Stærri herbergi og salir

Poly G-series er ný kynslóð Teams Meeting Rooms fjarfundakerfa frá Poly sem byggir á Lenovo tölvu með Windows stýrikerfi, G8 snertiskjá/controller og þeim mynd- og hljóðbúnaði sem hentar í hverju herbergi fyrir sig. Hægt er að fá myndavélar með Group Framing/Speaker Tracking/Presenter mode ásamt NoiseBlock og Acoustic Fence hljóðnemum.

Poly G lausnin er sérstaklega einföld í uppsetningu og þar sem aðeins þarf eina USB snúru frá skjánum á veggnum á borðið sem getur verið mun ódýrara í uppsetningu en aðrar sambærilegar lausnir. Poly G kemur í þremur útfærslum og styður fundarboð frá Teams, S4B, Zoom og Webex.

Gervigreindin hjálpar okkur að ná árangri

Nú geta myndavélar á fjarfundum greint andlit þátttakenda og þysjað sjálfvirkt:

  • Group Framing, myndavélin finnur þá sem eru í herberginu, súmmar inn og rammar þá í mynd.

  • Speaker Tracking, myndavélin finnur þann sem er að tala hverju sinni, súmmar inn og rammar hann í mynd.  Ef enginn er að tala fer myndavélin í Group Framing.

  • Conversation Mode, myndavélin finnur þann sem er að tala hverju sinni, súmmar inn og rammar hann í mynd.  Ef tveir tala til skiptis eru báðir settir á skjáinn ef enginn er að tala fer myndavélin í Group Framing.

  • Presenter Mode, myndavélin eltir þann sem er að tala og heldur honum í mynd, t.d. kennari að labba um fyrir framan töflu eða fyrirlesari í sal.

Innbyggðir hljóðnemar með gervigreind

Hljóðnemaar eru orðnir það öflugir að með gervigreind (AI) heyrist jafnhátt fá öllum þátttakendum, óháð því hversu nálægt þeir sitja. Þessu til viðbótar er hægt að fá hljóðnema sem taka mið af aðstæðum á hverjum stað, filtera út óæskileg umhverfishljóð og tryggja betri hljómgæði á fjarfundinum.

  • NoiseBlock, hljóðneminn slekkur sjálfvirkt á hljóðnemanum nemar þegar einhver er að tala og kemur þannig í veg fyrir að óæskileg umhverfishljóð berist inn á fundinn.

  • Acoustic Fence, Hægt er að afmarka  að svæði sem hljóðneminn pikkar upp.  Allt sem er utan þessa svæðis er filterað út.

USB hátalarasímar og myndavélar

Nýjasta kynslóð USB fundarsíma frá Poly

Fundarsímarnir koma í 3 útfærslum og eru jafnvígir á tónlistarflutning og fjarfundi.  Ný hönnun og tækni gera þessi litlu tæki ómissandi fyrir þá sem eru á fjarfundum og hægt er að para sama 2 SYNC 40 eða SYNC 60 fyrir stærri herbergi þegar þörf er á.

Poly USB myndavélar og Video Bar

Innbyggður hljóðnemi sem styður Group Framing, Speaker tracking, Conversation Mode, Presenter mode og hentar vel í minni rými þar sem góðir hátalara eru í skjánum. Poly Studio USB Video Bar er flaggskipið í USB línunni og kemur með innbyggða myndavél, 6 innbyggða hljóðnema og öfluga Stereo hátalara. 

myndskreyting

Ráðgjöf

Fá ráðgjöf